Þeir sem anda ekki deyja
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
22.05.2007 15:18:20 / estrid

kaldir sumardagar,, en það reddast.

 

Sit á lisasafni Íslands og velti fyrir mér hvernig öllum þessum íslendingum hafa tekist að kaupa íbúðir. Hvernig eiga námsmenn að eignast heimili án þess að verða skulda fangar. Ég veit ekki hvort að ég tými að henda mér út í lánakerfið og missa þá þetta ákveðna frelsi sem því fylgir að þurfa ekki að vera fangi útborgunarinnar. Á hinn boginn er ég víst komin á það þroskaskeið á lífsleiðinni að það er mjögn viðeigandi að eignast heimili. í rauninni ætti ég ekkert að vera að velta þessu fyrir mér, bara biðja lög aðdráttaraflsins um að sjá um þetta fyrir mig. Vá til hvers að hafa áhyggur af þessu öllu þar sem ég bý í samfélagi þar sem slagorðið: Þetta reddast maður,,, er heilagur sannleikur.  Jafnvel þegar spilling á sér stað og hækkuna á bensínverði og matarverði er svífyrðilegt,, kunna margir að hugsa með sér í sinni bældu andlegu einangrun. Æi vá þetta reddast maður. Í stað þess að horfa gagnrýnum augum á staðreyndir. þetta slagorð hefur sjálfsagt bjargað mörgum en getur verið að það sé orðið að kúgunar tæki. Ef einhver ætlar að skoða sannleikan, þá er honum bara sagt að slappa af því að þetta reddast allt maður... En uppáhalds slagorðið mitt þessa dagana er: það kemur í ljós. þetta er ótrúlega flott settning, hvað sem gerist þá kemur það upp á yfirborðið. Sannleikurinn mun koma í ljós, þannig er það alltaf.. Það er ekki hægt að segja á ensku: it will come in to light. Eða á sænsku: det kommer i ljusett... Nei þetta er eh sérstakt íslenskt og flott fyrirbæri. það er að mörgu leiti traustvekjandi. Allt sem er í ljósinu er gott, og ef það er ekki í ljósinu þá kemur það í ljós. Hvort að ég geti keypt mér íbúð, verður bara að koma í ljós. Ljós dagur á ljósatímum.


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 22:24:30 / estrid

þrefaldur latte

 

 

Fór með þrefaldan latte í þriggja tímapróf.  Er komin með kláða um allan líkaman, allir taugaendar grátbiðja hugan minn um að þeir megi fá frí. það voru tvær konur sem sátu yfir prófinu önnur er yndisleg og ég þekki hana, ég ýmidaði mér alltaf að hún væri að senda mér próf lukku strauma, en hin er þessi sérstaka lady sem bankaði á salernishurðirnar í Odda fyrir nokkrum dögum og var með athugasemdir um hversu langan tíma fólk gaf sér á salerninu. Hún the strange lady, hélt örugglega að hún væri flugfreyja mig langaði svo mikið til þess að hún myndi átta sig á því að hún væri að sitja yfir prófi.  þegar tveir tímar voru liðnir rétti ég upp hendi og spurði the lady hvort að ég mætti fá að fara á salernið. Ég sá það á svipnum á henni að hún var pottþétt ennþá inni í flugfreyjunni og brosti til mín, alveg sjálfsagt.  Eftir prófið fór ég í Yoga með dóttur mína hún fékk að fara í ballettbúning, henni fanst greinilega ekki nógu mikið aktion i yoganu, en breytti  sér í lítinn búdda í hugleiðslunni.


» 0 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 20:58:10 / estrid

fullt tungl

 

 

 

ítölsk málfræði á mig, ég á ítalska málfræði. Lífið er ekki svo alvarlegt svo lengi sem ég er upplýst í ljósinu og ég upplýsi ljósið. Fullt tunglið fyllir mig af einbeitingarleysi, laus við einbeitingu drekk ég inn kæruleysi lausleikans. Fór að vaða í sjónum með Bertu Björtu, Græna konan frá írlandi, héldum á ítölskum málfræðispjöldum þangað til að hendurnar urðu bláar af kulda. Það er að koma sumar ég finn það á skjálftanum í líkamanum. Lífið er bara létt, þegar ég reyni ekki að gera það létt.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.03.2007 10:19:45 / estrid

Veggurinn farinn

 

 

Jæja þá er búið að brjóta niður vegginn í kjallarnum. Ég er þakklát forfeðrum mínum fyrir þessa ljúfu maníu sem ég fékk í vöggugjöf.  Án hennar gæti ég ekki framkvæmt allar hugmyndir mínar.  Leonardo da Vinci vakir yfir mér og leiðbeinir mér í gegnum ómótaða steypuna. Lifum lífinu lifandi.


» 3 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 20:42:17 / estrid

Kvenn leg

Lausleg

Leglaus

Lagleg

Rík af hæfileikum

drottnandi doði

Full af dómum

Fangi angistar ástarinnar

Kona eigna

Sorg skelfingu ástar

Leg skemmtanna

Full fljótandi örvæntinga

Fangi hugans

Laus við lofandi von

Leg bjána

Verk krefjandi krafta

Keyrð út

Tára leg tómleikans

Traustið brostið

Brennd út

Brostið brjóst

Dæmd að fullu

Full af dómi

Full af leynd

Leyndardómsfull

Leynifélag á fyllerí

Fyllerí í leyni

Dæmandi dæmd

Full af fylli

Fylltu mig ég er dæmd

leglaus

lauslát   

Kvennleg


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.03.2007 22:04:55 / estrid

Dynjandi dans.

 

Drengur drattastu

drullandi druknandi drungi

Dansaði djöfla dans

Djarfar dísir dansa dátt

Draumur djáknadraumur dals

Draumur drengs     

drap dapra dís

Draumórar drengs

deyfði dómgreind dísar

Dómharka drengs

dópaði drukkna dúkku

Dofinn drengur

dýrkaði dapra dansandi dís

Dúsandi drekkandi djókandi

depurð drepur

Drukknandi drengur drattastu

dísar dansinn dynur     


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.03.2007 23:21:15 / estrid

Stífur strekktur strigi

 

 

 

Hann fer af stað í ferðalög,  það er ekki bara áfangastaðurinn heldur ferðalagið sjálft. meiripartur af ferðalaginu er siglingin sjálf. Siglum samana til Kína. Mig langar í í kínverska eyrnalokka úr postulíni og fílabeini og kínverskan rauðann varalit. Veðrið er appelsínugult og bleikt, þú horfir á mig og sérð Indland ég horfi á þig og sé Sikiley, hjartað mitt er frá víkingaöld þitt er úr íslendingasögunum, sjaldgæfur vindur blæs, regnið er glaðlegt, og skugginn þinn vill sleppa sér en þú stendur á honum og hann er í föstum skorðum. Ég vona að þú hafnir mér ekki með franska hárgreiðslu, ég klippti allt hárið mitt af því að það voru svo margar gamlar minningar fastar í því,  núna horfi ég á allar minningarnar þeytast í burtu eins og auglýsingatími á Mtv.  Hver er aðalpersónan í þessari sérkennilegu serímóníu?  Sex svartir englar,  peningar eru bara úr gulli.  Landgæðin, ég sigli með þér, ég kenni þér á seglin, á kvöldin bý ég til ballkjól úr seglunum  og dansa við þig á hvítri sandströndinni,  indverskar hendur mínar leita til himins og snúast líkt og glaðar eiturslöngur sem kunna að meta góða tónlist næturlagsins. Trúarbrögðin okkar bregða fyrir, þér bregður þegar ég trúi því að við getum beðið saman,  borðað  borðhaldið með bæninni og beðið bónina um börnin og brjóstið. Fólkið í kringum okkur brosir, öll þessi andlit eru eins og á  hundum sem fagna, tyrkneska bringan mín er þakin kaþólskum hálsfestum frá Istanbul. Skelfiskurinn sem við borðum heitir skelpöddur á Indlandi, við vitum hvað þær eru hollar fyrir okkur,  matjurtargarðurinn er fullur af jurtum ég veit ekki hvað allar heita en þú ert með það skráð í bókasafninu sem þú burðast alltaf með í huga þínum, ég gægist stundum þangað inn, ég veit að ég má það ekki en, ég kann að hakka mig inn, þar les ég um allar ástarjátningarnar sem þú ert að geyma sem þú ætlar kannski ekki að segja mér, þetta er allt til mín. Ég veit af hverju ég má stelast þarna inn og þú veist að ég geri það.  Þér finnst það bara gott að ég les í lesstofunni þinni. Þú heldur að ég fari frá þér.  Heiðnum manni er refsað,  sólarlagið er bleikt þú segir aldrei neitt en mér líður vel, við vitum bæði að þetta sérkennileg saga. Nú veit ég hvað ég mála á strigann.   

» 0 hafa sagt sína skoðun

06.03.2007 21:37:56 / estrid

Legið er víst í tísku

 

 

 Það er nú best að ég fari að virkja leg lögin mín og varpi frá mér einu ljóði. Rétti tíminn er kominn. Ljóðin sem eiga heima í ljóðabókinni Legið í ljóði.

 

Legið í ljóði

Legið í lestri

Lesið í leg

Lesið í lófa

Loðinn lófi

Leo loksins laus

Lofandi lestur

Ljúgandi leikur

Listir ey ljúga létt

Ljúfu læti

Lykill lása

Læsum

Lof sé leyfi ljóða

Lof sé leyfi lista

Legið lifnar

Lífið lofar

Legið læknar

Lasleikann legið

Legið í leti

Legið í mér

Leiðir í leiki

Leiki ljós

Ljóssins ljós

Lækning leiksins

Læknast loks

Loksins ljúfa leg

Ljóðin þín lifna

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 21:30:36 / estrid

Íslenska ímyndin

 

 

Fagra fóstur fjara

 

 

 

Rjúkandi vík rokin reykt

 

Rjóða ropandi rúllandi rós

 

Hrokinn hokin sori sorp

 

Hafsjór sérvisku sérvitringa

 

Hvalir kveina sálar söngva

 

Loðinn lopi

 

Lufsulokkar ljóðasmiða

 

Fjúkandi fokinn hreykin

 

Fagnandi frelsi freistinga

 

Fagrir fákar flýta flótta

 

Fjallkonan freka fyrirsætan

 

Fyrirsæta fellur

 

Fótóshoppaður fáni

 

árás álrisa á  álfa

 

álög álfanna

 

reitir til reiði

 

rauður Reiðifjörður

 

rjóða ropandi rúllandi rós

 

rænandi ruplandi

 

refur

 

Kaldur Kári

 

Kyngir kjúku

 

Virkir virki

 

Vitsmuna

 

Minning moldar

 

mulin

 

Bónus bumban

 

Belgdur bófi

 

Slefandi sauðir

 

Seðlabúntanna

 

Goshver grjóthrúga gróðurmold

 

Græðgi grísa gýs

 

Geirfuglinn grafinn

 

Gleymum gerum gys

 

Ræðum rokið

 

Roðnum rjúfum eið

 

Rjúkandi vík rokin reykt

 

 

 

 

Estrid Þorvaldsdóttir

 

 

 

 

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.12.2006 23:24:32 / estrid

ljós og friður

Þetta er fullkominn tími til þess að detta í viðmiðunarfyllerí. Að miða sig við næsta mann og fara í sjálfsvorkun yfir því að eiga ekki hitt og þetta. En það gleymist svo oft að þetta er allt saman bara fyrir afmælið hans Djísus litla. Ég er haldin Ghandi komplex og er að rembast við að halda mér í ljósu deildinni, og held að það sé mitt hlutverk að vera að predika væmnina, á sama tíma og ég nota blótsyrði sem hressandi lýsingarorð.  En það er bara þannig að ég held að það myndu ekkert allir fíla það að fá bara ljós eða bros frá mér í jólagjöf, þannig að ég er búin að ákveða að þegar ég er búin að skila 12 blaðsíðna ritgerð á morgun þá ætla ég bara að fara í bankann og ná í vel geymda vísakortið mitt og kaupa rándýrar vistvænar, lífrænar, kærleiksríkar, samviskubitseyðandi, jólagjafir. Ghandi verður bara að bíða þangað til á næsta ári þá ætla ég að fylgja hans stefnu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

22.10.2006 23:36:26 / estrid

Hugurinn leiddur leiðar sinnar

Hvíld, ró og tímaleysi er nokkuð sem hinn hraðskreiði nútímamaður sér í hyllingum en hugsar með sér að það tilheyri fortíðinni að leyfa sér slíkann munað. Grunnurinn í allri trú er sá að einstaklingur sem trúir finni það í gegnum guð að hann sé hluti af stórri eilífri heild. Hamingja og friður er nokkuð sem maðurinn leitast stöðugt við að öðlast meðvitað eða ómeðvitað alla ævi, hvort sem hann trúir á guð eða ekki. Ein leið mannverunnar til þess að nálgast guð eða Helgidóminn og sú er mest áþreifanleg hefur verið í aldanna rás í gegnum myndlist og við gerð helgimynda eða íkona. Mismunandi menningarheimar hafa gert mörkin á milli sín skýr og sjáanleg með hversu ólíkar myndir þeir hafa af sínum guði. Mörkin milli mismunandi menningarheima hafa einmitt komið skýr fram í því hversu ólíkar myndir af guði birtast innan þeirra. Hraði og efnishyggja sem sem einkenna 21. öldina gera það að verkum að oft vill gleymast að myndlist fyrri tíma hafi að mestu leyti þjónað þeim tilgangi að gefa mönnum von og trú. Í dag er myndlist fyrst og fremst söluvara. Frelsi er hugtak sem nútímamaðurinn mætir í ýmsum myndum í sínu daglega umhverfi, það er mikið notað í markaðssetningu og er gert að eftirsóknarverðu markmiði. En frelsið alveg eins og leit manna að guði hefur breyst í gegnum tíðina og með upplýsingunni. Kant talaði um að eina skilyrðið fyrir því að umrædd upplýsing geti átt sér stað er frelsið og er þá átt við frelsið í sinni skaðlausustu mynd þ.e.a.s. frelsi til óskertrar notkunar skynseminnar á opinberum vettvangi. Einkunnarorð upplýsingarinnar eru: ,,Hafðu hugrekki til að nota eigið hyggjuvit." Leti og ragmennska er orsakir þess að svo stór hluti mannkyns er fús til að ala allan sinn aldur í ósjálfræði þrátt fyrir að náttúran hafi fyrir löngu leyst mennina undan framandi handleiðslu. Það eru til margar leiðir til að lifa lífinu en þær eru oftast mótaðar af menningu og tíðaranda. Ein leið að lifa sínu sjálfstæða lífi er að líta á leti sem synd eða sjálfselsku og að trúa á handleiðslu guðs sem ósjálfstæði. Upplýsingin og reynslan hefur sýnt að sá maður sem aldrei leyfir sér að vera í leti muni missa sína heilsu. Þegar hugurinn er leiddur að hugtakinu leti þá er hægt að spyrja sig: getur verið að það sé eithvað náttúrulegt eða jafnvel guðlegt í manninum sem krefst þess að hann hvíli sig, letji sig eða letji hugann? Nútíma maðurinn lítur á það sem synd og sjálfselsku að hlusta á sína innri náttúru og liggja í leti. Ást á sjálfinu er einnig hugtak sem er vel markaðssett og talið vera markmið í sjálfu sér en ekki er hægt að ná þeirri paradís nema með því að stunda hugleiðslu, að leiða hugann eða að gera hann leiðann og leiða hann í leti.


» 0 hafa sagt sína skoðun

20.10.2006 13:57:55 / estrid

ljóð dagsins

 

Stjórnleysi gjafanna.

 

Geturðu gefið mér auðmýkt

Geturðu gefið mér gjafir svo að ég geti gefið af mér.

Geturðu gefið mér þyrlu 

Geturðu sent mig til New York 

Geturðu gefið mér þann sem ég vil fá.

Geturðu gefið mér þann sem ég á að fá

Geturðu gefið mér orku

Viltu leyfa mér að stjórna

Viltu hjálpa mér að hætta að stjórna ég ræð ekkert við það.

Viltu gera mig að forstjóra í fyritæki

Viltu hjálpa mér að slaka á

Takk fyrir allt sem ég hef fengið

Ég held ég þurfi bara auðmýkt

Geturðu gefið mér auðmýkt.

 

Estrid Bergman.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.10.2006 13:58:14 / estrid

The law of attraction.

Allt sem hugurinn girnist munum við öðlast. Óskaðu þér og alheimsorkan mun breyta ósk þinni í raunveruleika. Nýjustu hugvísindi sem eru í raun vísindin, eða skammtafræði sem fjalla um það að allt sem við hugsum breytir okkur í segul og það mun koma til okkar. The law of attraction. Myndin sem sett er í hugann þarf að vera skýr, það eina sem krefst til þess að myndin verði að raunveruleika er að við höfum góða tilfinningu fyrir óskinni. Góða tilfinningu það er besti sendikrafturinn. Það skemmtilega við skammtafræði er einnig það að jákvæðar hugsanir eru mikið sterkari en þær neikvæðu. Við fáum allt sem við viljum ef við viljum það. Ég byrja í dag að senda út myndir af öllu því sem ég vil og er með góða tilfinningu fyrir því, þarf ekki að gera mikið meira.

» 0 hafa sagt sína skoðun

18.10.2006 14:19:13 / estrid

Fallbeygð

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Beygð og fallin.

Ég nefni þetta fall

Ég þoli þetta fall

Í þágu fallsins beygist ég

Ég eigna mér þetta fall

Því ég er beygð og fallin


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 14:38:37 / estrid

Jóðlað í gegnum daginn

Fékk í dag þær stórkostlegu upplýsingar hvernig það er raunverulega hægt að jóðla.

Það er einfaldlega.

Litle old lady,

Litle old lady,

Litle old lady,

Litle old lady,

Litle old lady,

Litle old lady,

Litle old lady,

Léttir lundina,  Esta besta.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Myndasöfn